Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Allt búiđ

11. desember 2006 klukkan 00:37

jæja þá er ég loksins búinn í prófum! :D
var í síðasta prófinu í morgun sem var stæ603, og var ég alveg í 3 og hálfan tíma í prófinu.
en mikið djöfulli hlakkar mig til að sjá einkunnirnar, en verð víst að bíða til 15.Des :(
Ef allt gekk upp þá eru bara 3 einingar eftir uppí stúdent!

Nú þarf maður bara að fara finna jólagjafir... og svona... dútl.
Og sökum gífurlegs þrýstings frá Haffa mun ég eyða auka tíma mínum um jólin í það að læra á linux. Er ég nú einnig farinn að halda því fram að álíka mikilvægt sé að læra á linux og að kunna hræra saman kakómalti! eða m.ö.o. lífsnauðsyn!

Annars vá það voru þrumur og eldingar á Íslandi í dag!
en verst hve skýjað var og ég var að gera annað þá gat ég ekki farið að reyna mynda þær, en jæja ég ætla mér að reyna fara einhvern dagin erlendis í rigningu og eldingar og læti til að mynda! Einnig væri nú gaman að sjá hvirfilbil einhverndagin...

Hörđur Guđmundsson
5 athugasemdir

Hvađa helvítis

23. nóvember 2006 klukkan 18:14
Langaði að leggja fyrir ykkur smá þraut
en hér sanna ég að 4 = 5 , eða hvað?

-20 = -20

Umritast:
16 -36 = 25 - 45

4^2 - 4*9 = 5^2 - 5*9

Bætum við 81/4
4^2 - 9*4 + 81/4 = 5^2 - 9*5 + 81/4

Þátta svo helvítið:
(4-9/2)^2 = (5-9/2)^2

Fjarlægi veldi hins illa:
4-9/2 = 5-9/2

Og útkoman er:
4 = 5



kveðja að sinni, Hörður ;)
Hörđur Guđmundsson
7 athugasemdir

Vá nýtt blogg!

10. nóvember 2006 klukkan 05:44
Jæja, þá er kominn passlegur tími frá því ég smellti inn bloggi á þessa síðu!
og langar mig allra helst til að segja ,,vúpdídú!" því til heiðurs!
En þetta orð kannast menn máski við að hafa heyrt frá Hafsteini eða Gunnari

En hvað þýðir þetta orð og hvaðan kemur það?
Ég er eiginlega ekki alveg klár á því en mín besta ágiskun er að þetta sé notað í þeim tilgangi að sýna fram á kátínu, gleði eða vera sáttur við hluti sem eiga eftir að verða eða jafnframt hafabgerst!
Einhvernegin grunar mig þó að þetta orð eigi rætur að rekja til Andrés Anda blaða, en þori ekki að veðja uppá líf mitt fyrir þá ágiskun, en kanski líf annarra Saklaus.

En annars í næstu komandi færslum, ætla ég að smella inn nokkrum myndum hérna af og til sem ég hef verið að taka undanfarið :)
svona þangað til ég get farið að smíða mína eigin heimasíðu og mínu domain....en geng í það eftir prófin, læt þetta duga í bili!!

Blah varð að linka á myndirnar beitn héðan svo þær sjáist rétt Glottandi

Skipið sem rak frá bryggju og strandaði í óveðri um dagin:
http://www.internet.is/hordurg83/lmk/018.jpg


Fyrsta HDR myndin sem ég tók (margar myndir settar saman til að sjá fleirri detail-a sem eru lengra frá manni, eða með öðrum orðum dynamiska svið myndarinnar verður mun meira...)
http://www.internet.is/hordurg83/lmk/016.jpg


Þessi hérna fannst mér skemmtileg og skilaði mér 3.sæti í ljósmyndakeppni þar sem þemað var leikfang:
http://www.internet.is/hordurg83/lmk/HAGAMUS.jpg
Hörđur Guđmundsson
2 athugasemdir

Krónupeningur

21. september 2006 klukkan 01:03

Ég missti niður krónur um dagin og hugsaði með mér
,,á ég að taka þetta upp?" og labbaði svo í burtu...

Nú er þessi athöfn búin að herja svo á huga minn að ég gat ekki annað en farið að
athuga hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun eða ekki.
Svo ég hef nú reiknað út hvort það borgi sig að taka upp krónuna eða ekki.

Gerði ég margar tilraunir með skeiðklukku mér við hendi, þar sem ég lét mig missa
krónupening ,,óvart" í gólfið og taka svo tímann á því hve mikill tími fer í að taka
peninginn upp og setja í vasann.

Ég framkvæmdi þetta á sem raunverulegastan hátt og passaði á mig að vera ekki
að flýta mér um-of eða draga það á langin að taka upp peninginn því það hefði
getað skekkt útreikninga.

Ég hef komist að því að meðal-upptaka hjá mér á krónupeningi
(gæti verið breytilegt meðal fólks) er um 3,3sec. og er þá kvikyndið komið ofaní
vasa með staðalfráviki uppá +- 1,242749sek

Ef ég reikna þetta á mig sem laun pr/klst þá er ég að fá 986kr á tímann að meðaltali

en hærri mörk eru 1.496 kr og lægri mörk 736kr á tímann.


Með allt þetta til hugar þá væri ég að meta tíma minn lægra en tímakaup mitt niðrí vinnu,
svo að ég mun ekki í framtíðinni beygja mig eftir 1 krónu sem ég missi!


Vonast ég til að aðrir geti haft þetta að leiðarljós næst þegar þeir eru í hugleðingum
um hvort taka skuli up peningin ella skilja hann eftir í götuni.
Þessi útreiknungur á ekki við ef misst er meira en einakrónu í götuna, en væntanlega sér
hver maður að ef hann missir meira en 2 krónur á sama stað þá er ekki spurning,
maður tekur þann pening upp.Hlæjandi

Króna

Hörđur Guđmundsson
9 athugasemdir

Jćja

12. september 2006 klukkan 21:37
Þá er soldið langt síðan ég hef bloggað síðast...

Svona eitthvað hefur gerst síðan þá jújú, skólinn byrjaður og svona.
Er alveg á fullu núna flesta daga í því að læra stærðfræði enda er ég í stæ413,stæ513 og stæ 603, en þegar ég er ekki að læra undir stæ er ég niðrí vinnu eða heima hjá Herdísi Hlæjandi

En annars þá erum við Herdís búin að vera saman í meira en 7 mánuði HlæjandiHlæjandi þetta hefur verið rosalega fljótt að líða, og alveg yndislegur tími Saklaus, held það sér mikið Herdísi að þakka að ég ætli mér að halda áfram í skóla.. allavegana mikil hvatning þegar maður sér hvað hún er búin að vera dugleg, klára stúdent á tvem árum og er svo í Líffræði í háskólanum, og stefnir á dýralæknanám í Danmörku...og ég fer að sjálfsögðu með Hlæjandi

annars reyni að bæta eitthvað við þetta í kvöld... þarf víst að fara vinna aðeins
Hörđur Guđmundsson
3 athugasemdir

Lítiđ

17. ágúst 2006 klukkan 23:55

Lítið blogg í dag, minna en smátt, en betra en eitt sem er ekki neitt. Það tel ég rétt.

Jey, var að lesa greiin um að risakrabbar (5kg kvikyndi) væru að nema land í Faxaflóa og á Breiðafirði, langar mig nú að fara heilsa uppá kappana og taka í spaðan á þeim. En þeir þykja víst mjög góðir til átu.

Hver vill ekki borða risakrabbastöppu í púrtvínssósu?

Hörđur Guđmundsson
2 athugasemdir

Meira frá Albir

30. júlí 2006 klukkan 01:33

Jæja þá er nú mikill hluti af fríinu liðinn, einungis fjórir dagar eftir en þó er full dagskrá framundan... næstum því UllandiUllandiUllandi

Liggja á ströndinni og vera í sólbaði á hótelinu í tvo daga, heimsækja annan hluta af "Benidorm" sem heitir Altea og skreppa í ferð með farastjóra og sjá dropahelli sem verður öruggelga mjög gaman og ferlega margar myndir teknar.


Annars það sem maður er búinn að vera gera síðustu daga ber helst að segja frá því er farið var í Terra Natura og skoðuðum við þar alveg helling af dýrum, en þar eru um 1500 dýr og yfir 200 tegundir þar af eru 50 í útrýmingarhættu. Ég var búinn að versla mér 4GB kort í myndavélina á 18þús kr. (18.303.kr) en kostar um 30 heima.. .sjhiz... en það var þess virði því ég tók um 400myndir í þessum dýragarði, enda mjög mikið að sjá.UllandiUllandi


Dagin eftir fórum við í Terra Mitica, sem er aðal tívolíið og hugsanlega það eina... á svæðinu, þar keyptum við tveggja daga passa því við vissum að við ættum eftir að eyða einhverjum tíma þar. Farið var í öll tæki...(að undanskildum fallturn) og var það alveg hreint svakalega gaman, og fór ég í einhvern brjálæðislegasta rússíbana sem ég hef nokkurntíman prófað en sá fór í lykkjur og á hvolf og allan fjandann hehe, greinilega ekki allir sem þola þetta tæki því í annað sinn er við fórum í þennnan bana þá var einn strákur ca 10-13ára stjarfur eftir í stólnum og hélt utanum brjóstkassann... kanski hann hafi verið eitthvað hjartveikur greyið Hissa

Einnig var líka skelfilega gaman að fara í vatnsrússíbanana því manni var orðið svo fáránlega heitt... alveg nauðsynlegt að geta kælt sig svona aðeins niður eftir að vera í 35° hita.



Síðan vorum við að slæpast eitthvað einn dagin og var þá þessi mynd tekin af mér.. í áfenginu að sjálfsögðu, því ég drekk svo SVAKALEGA mikið...eða þannig hehe Saklaus

síðan stuttu seinna var mér skipað að fara í bol í þessarri verslun...dúmdídúm.....Saklaus

Ég í verslun á spáni



Og hérna er mynd af einu flugukvikyndinu sem ég lofaði, þessi fluga lætur geitunga/vespur líta út fyrir að vera littla og ræfilslega, þetta er sannkallaður viðbjóður og á stærð við stóru tánna á mér (ekki fyrir viðkvæma hoho, flugan þar að segja...).


RISA fluga



Og svo í lokin kemur nokkuð sem ég get sagt um Spánverja


° Þeir eru dónar, öskra "hóra hóra" fyrir framan alla.

° Þeir eru aftur dónar, stoppa sjaldan fyrir manni á "sebra brautum" (þar sem maður á að labba yfir götu).

° Kunna ekki að gera hamborgara, og kunna ekki heldur að búa til góðan kjötbúðing, en þeir nota hann í stað nautakjöts.

° Bjóða manni uppá ógeðsleg jógúrt á hóteli þó annað betra sé til, líkist/smakkast helst myglaðri mjólk.

° Kunna alment ekki að búa til mat, eini maturinn sem maður étur hér með bestu list er McDonalds, enda fylgir stöðlum McDonalds keðjunar...

° Kunna fáir ensku og skilja ekkert í íslensku (er auðvitað bara fáránlegt).

° Setja tunguna á milli tannana þegar þeir segja "gracias" og kemur því einskonar "þ" hljóð þarna inná milli... pælið í því að kunna ekki að segja "gracias" á sýnu eigin tungumáli...þessir Spánverjar...

° Selja mjög gott nammi á mjög lágu verði, er mjög slæmt því nú þarf maður að fara taka á því þegar ferðinni lýkur.

° Talsetja myndir á spænsku, og ennfremur skrifa allar bækur á spænsku (kemur manni á óvart).

° Flytja inn afrískar konur til að búa til fléttur í hárið á fólki.

° Hafa ekki rænt mig neinu.
UllandiUllandiUllandi



En endilega kommenta eitthavð fólkur svo ég nenni að halda þessu bloggi gangandi Ullandi

Hörđur Guđmundsson
6 athugasemdir

Fyrstu fimm dagarnir á Spáni :D

26. júlí 2006 klukkan 01:19

Jæja þá er ég hér að blogga útá Spáni, hingað til hefur verið gott veður, helst til of gott oft á tíðum en er þó mjög þægilegt hér á kvöldin og snemma á morgnana.
En jæja frásögn mín fer eftir því hvernig ég forgangasraða hlutunum og er þar MATUR hæstur á lista.UllandiUllandiUllandi

Hótelið okkar Albir playa, er fjögurra stjörnu hótel og höfum við hálfan mat þar, en borðum örugglega ekki nema helmingin á við aðra... því þetta er ferlega vondur matur en eftir rétturinn er mjög vel ætur yfirleitt en ekki alltaf.

Því eru smá birgðir af nammi til uppí herbergi, nammi er mjög ódýrt hér Ullandi Annars reyndum við líka að fara á aðra staði til að fá okkur að borða, þá hamborgara. Í fyrsta sinn fékk ég ferlega skrítinn hamborgara sem var gerður úr 2 litlum borgurum staflað ofaná hvorn annan, en Herdís sem pantaði það sama fékk bara einn stóran borgara, sökum hversu erfitt er að tjá sig við Spánverja þá gerði ég ekkert úr þessu og át þennan ógeðslega hamborgara (sem var einnig of steiktur).


Í annað sinn er við fengum okkur hamborgara var það bara kjötbúðingur kryddaður með vondu kryddi og var ferlega vont...on ofaní maga fór allt saman því ekki er mikið annað að borða og við vitum aldrei fyrirfram hvort eitthvað sé ætt á hótelinu (undanskildum eftirréttnum). En okkur til MIKILLAR hamingju fórum við á Mc.Donalds í gær og pöntuðum þar mat og var ég glaður að sjá hvað ég var duglegur að panta, því allt í einu var búið að bera fram 2x Happymeal (hamborgari, franskar, jógúrt og dót) 2x hamborgara, 2x Medium franskar, 2x Coca-cola light medium stærð... hehe ég borgaði bara fyrir þetta allt og við gátum svo hlegið aðeins að þessarri vitleysu. En til mikillar hamingju þá gekk það nú bara mjög vel hjá mér að panta núna áðan og fékk allt eins og ég hélt að ég væri að panta hehe Ullandi.


Annars það sem búið er að gera þessa dagana er að við höfum verið dugleg að bera á okkur sólavörn og liggja í sólbaði, þó er Herdís nokkuð brunnin á herðunum og niður á bak, og ég er brunninn á ANNARRI öxlinni já hehe annarri... ég hef örugglega gleymt að bera á mig vörn þar og vorum við úti að labba í 5 tíma þann dagin, en jæja ég er ekkert meira brunninn en það annarsstaðar þó hehe. Enn sem komið er höfum við bara farið einusinni niður á strönd og var það nú bara nokkuð þægilegt því það kom gola frá sjónum.


Við fórum í eina verslunarmiðstöð hérna sem var svo svakalega stór að maður var kominn með algjört leið á því að labba þar, meira segja Herdís líka, en þar keypti ég eitthvað dót..buxur og svona, sáum svo dýrabúð þar sem verið var að selja allskonar dýr, þar á meðal hvolpa, eðlur og skordýr.Ullandi


Við fórum í Mundomar sem er eiginlega dýragarður að mínu mati, þar sáum við Sæljónasjów sem var mjög flott og létum taka mynd af okkur með Sæljónunum, einnig sáum við Höfrungasjów sem var ekkert smá flott og alveg ótrúlegt hvað hægt er að kenna þessum dýrum og ótrúlegt hvað þau virðist skilja mikið. Einnig var alveg hægt að skoða helling af öðrum dýrum og tók ég mynd af þeim öllum, og var kortið á myndavélini ekki lengi að fyllast hjá mér. En held ég fari að kaupa eitt 4gb kort í næstu verslun sem ég sé áður en farið er í stóra dýragarðinn, kostar rétt um 18þús krónur hérna...og þá þarf ég varla að hafa áhyggjur af þessu.

Á sunnudaginn fórum við á útimarkað í Benidorm, ég tók myndavélina með mér og allt kittið, en svo var svo mikil mannþröng þarna að ég var ekkert að taka hana upp, annars keypti ég eitthvað aðeins þar, en vá hvað það geta verið til ágengir sölumenn, maður verður bara labba í burtu og þykjast ekki heyra í fólkinu svo það láti mann í friði liggur við. Allavegana ekki stoppa á sama staðnum lengur en eina mínútu. Samt var þetta nú mjög gaman þó að hitinn og sólin hafi farið að segja til sín, en eitt af því merkilegasta sem ég sá þarna voru án efa drekaflugurnar sveimandi um svæðið og einhver RISA fluga sem er eins og fjórar randaflugur á stærð, og án gríns, veit vel að ég er þekktur fyrir það að ýkja um stærð skordýra hehe...en þessi var stór Ullandi

En það er alveg tonn af vespum hérna og er maður orðinn algjörlega ónæmur fyrir því þó þær sveymi nálægt manni, og reyndar öllum skordýrum hér, persónulega finnst mér að Íslensk skordýr eigi að taka skordýr Spánar sér til fyrirmyndar, þau eru ekkert að vesenast í mannfólkinu hérna heldur bara fljúga sína leið og búið, mjög þægilegt Ullandi

Annars, ég ætla reyna ná einhverjum myndum af þessum skordýrum Ullandi allavegana vespunum, sjáum til með það hvort ég finni einhverja drekaflugu eða RISA flugu sem er kyrr Ullandi

Annars, mæli með því að kíkja á bloggið hennar Herdísar Evu (www.herdiseva.bloggar.is) ef þið hafið tíma og viljið lesa alveg alla söguna, erum bæði búin að vera rita þá ritgerð..en eiginlega aðalega og eingöngu Herdís

bæjó í bili




Flamingóar í Mundomar (dýragarði no.1)
Í Mundomar dýragarði

Höfrungasjów í Mundomar
Höfrungasjów í Mundomar

Ég og Herdís nokkrum sinnum...
Ég og Herdís nokkrum sinnum...

Hörđur Guđmundsson
Engin athugasemd

Albir á morgun

18. júlí 2006 klukkan 01:36
jæja þá er komið að því er að fara á morgun,
er búinn að pakka 2 bolum, 1 sokk, 2 nærbuxum ofaní tösku.
Hlutirnir eru semsagt í góðum gír og óþarft að stressa sig á einu eða öðru,
svotil búinn að tryggja myndavélina mína osfrv.

En ekki eru allir á sama máli og segja að mikið sé eftir að gerast, því skítur því uppí koll minn sá frasi sem ég eitt sinn heyrði
,,Ef allir í kringum þig eru að sleppa sér
og þú ert hinn salla rólegasti, þá er ekki allt í lagi"

en iss þetta er bara frasi, allt erí því fínasta, allt er ready.
síðan reddast alltaf allt... ef eitthvað er að ....

en annars, fór að skoða hvolpa heima hjá góðum vin sem er jú Pabbi hans Friðriks, heil 8 stykki hreinræktaðir labradorar, ekkert smá krúttlegir hundar, enda ætla ég að fá mér eitt hundspott þegar ég er orðinn stór.
Annars hér er ein mynd sem ég smelti af Árna og einum hvolpnum sem fæddist dáinn, en
Árna tókst að lífga hann við eftir að hafa reynt í 30 mínútur.

Árni og óskýrð

Hörđur Guđmundsson
1 athugasemd

Albir eftir 2 daga.

17. júlí 2006 klukkan 03:44
2 Dagar þangað til ég fer til Albir, ætla reyna komast inná eitthvað net kaffihús einu sinni til að gera eina færslu á meðan ég er úti, en annars...ætlar maður bara reyna gleyma littla Íslandi Hlæjandi, þó það sé að sjálfsögðu besta land í heimi Hlæjandi

Vá annars leiðist mér eitthvað akkurat þessa stundina svo ég ákvað að hripa saman hér eitt lítið ljóð á örfáum mínútum.
Og nenni ekki að skrifa neitt meira.
En það fjallar lítið eitt um ferðina..


Útlendingur

________________________
Vélfluga flýgur landi frá
fal fésaður lítur frá
hræðsla vill suma hrjá
vellur vessinn suðurmunviki frá

Hvaða raða maða saða
hann er að fara vaða
vona fari ey í kaf
ofaní erlent haf

rússabana hræðist annar innlendingur
hringinn voða hristingur
ljósið svarta ýmindar sér
suddalega dauðan finn ey hér

Sandur strandur klandur hanklæðastandur
hreistri roða sóla veldur
bruni mikill um sólarstrendur
en ég, hræðist ey.
______________________
Hörđur Guđmundsson
Engin athugasemd