Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Meira frá Albir

30. júlí 2006 klukkan 01:33

Jæja þá er nú mikill hluti af fríinu liðinn, einungis fjórir dagar eftir en þó er full dagskrá framundan... næstum því UllandiUllandiUllandi

Liggja á ströndinni og vera í sólbaði á hótelinu í tvo daga, heimsækja annan hluta af "Benidorm" sem heitir Altea og skreppa í ferð með farastjóra og sjá dropahelli sem verður öruggelga mjög gaman og ferlega margar myndir teknar.


Annars það sem maður er búinn að vera gera síðustu daga ber helst að segja frá því er farið var í Terra Natura og skoðuðum við þar alveg helling af dýrum, en þar eru um 1500 dýr og yfir 200 tegundir þar af eru 50 í útrýmingarhættu. Ég var búinn að versla mér 4GB kort í myndavélina á 18þús kr. (18.303.kr) en kostar um 30 heima.. .sjhiz... en það var þess virði því ég tók um 400myndir í þessum dýragarði, enda mjög mikið að sjá.UllandiUllandi


Dagin eftir fórum við í Terra Mitica, sem er aðal tívolíið og hugsanlega það eina... á svæðinu, þar keyptum við tveggja daga passa því við vissum að við ættum eftir að eyða einhverjum tíma þar. Farið var í öll tæki...(að undanskildum fallturn) og var það alveg hreint svakalega gaman, og fór ég í einhvern brjálæðislegasta rússíbana sem ég hef nokkurntíman prófað en sá fór í lykkjur og á hvolf og allan fjandann hehe, greinilega ekki allir sem þola þetta tæki því í annað sinn er við fórum í þennnan bana þá var einn strákur ca 10-13ára stjarfur eftir í stólnum og hélt utanum brjóstkassann... kanski hann hafi verið eitthvað hjartveikur greyið Hissa

Einnig var líka skelfilega gaman að fara í vatnsrússíbanana því manni var orðið svo fáránlega heitt... alveg nauðsynlegt að geta kælt sig svona aðeins niður eftir að vera í 35° hita.



Síðan vorum við að slæpast eitthvað einn dagin og var þá þessi mynd tekin af mér.. í áfenginu að sjálfsögðu, því ég drekk svo SVAKALEGA mikið...eða þannig hehe Saklaus

síðan stuttu seinna var mér skipað að fara í bol í þessarri verslun...dúmdídúm.....Saklaus

Ég í verslun á spáni



Og hérna er mynd af einu flugukvikyndinu sem ég lofaði, þessi fluga lætur geitunga/vespur líta út fyrir að vera littla og ræfilslega, þetta er sannkallaður viðbjóður og á stærð við stóru tánna á mér (ekki fyrir viðkvæma hoho, flugan þar að segja...).


RISA fluga



Og svo í lokin kemur nokkuð sem ég get sagt um Spánverja


° Þeir eru dónar, öskra "hóra hóra" fyrir framan alla.

° Þeir eru aftur dónar, stoppa sjaldan fyrir manni á "sebra brautum" (þar sem maður á að labba yfir götu).

° Kunna ekki að gera hamborgara, og kunna ekki heldur að búa til góðan kjötbúðing, en þeir nota hann í stað nautakjöts.

° Bjóða manni uppá ógeðsleg jógúrt á hóteli þó annað betra sé til, líkist/smakkast helst myglaðri mjólk.

° Kunna alment ekki að búa til mat, eini maturinn sem maður étur hér með bestu list er McDonalds, enda fylgir stöðlum McDonalds keðjunar...

° Kunna fáir ensku og skilja ekkert í íslensku (er auðvitað bara fáránlegt).

° Setja tunguna á milli tannana þegar þeir segja "gracias" og kemur því einskonar "þ" hljóð þarna inná milli... pælið í því að kunna ekki að segja "gracias" á sýnu eigin tungumáli...þessir Spánverjar...

° Selja mjög gott nammi á mjög lágu verði, er mjög slæmt því nú þarf maður að fara taka á því þegar ferðinni lýkur.

° Talsetja myndir á spænsku, og ennfremur skrifa allar bækur á spænsku (kemur manni á óvart).

° Flytja inn afrískar konur til að búa til fléttur í hárið á fólki.

° Hafa ekki rænt mig neinu.
UllandiUllandiUllandi



En endilega kommenta eitthavð fólkur svo ég nenni að halda þessu bloggi gangandi Ullandi

Hörður Guðmundsson
Það er langt síðan ég datt síðast inn á síðuna en tíðnin stendur til bóta, dreif loks í því að setja slóðina inn í hlekkja-listann á minni síðu :)
Þrennt vekur sérstaka athygli hjá mér: Flugan, Hvolpurinn og Myndsamskeytingin ;)

Sökum skordýraáhuga míns þá verð ég að vita nánari deili á flugunni, erfitt að átta sig á stærð og tegund af myndinni, vantar eldspítnastokk eða álíka og eins virðist þetta eintak lemstrað!! Ill meðferð!?!?

Er í lagi með hunda eftir 30 mínútur? Hvað með súrefnisskort? Áttum eitt sinn hund sem kölluð var Offa og var í raun soldið skrítin en hún varð einmitt útundan í goti og þurfti að lífga við :|

Er þetta möguleiki sem boðið er upp á í vélinni að skeyta saman myndum teknum á mismunandi tímum (væntanlega frá sama stað)??

Munið eftir vatninu og endilega fáðu Ogga til að bjarga síðunni sinni, þeir eiga það til að hreinsa til heimasvæðin hjá HÍ nokkrum mánuðum eftir útskrift ef fólk innritar sig þá ekki aftur í meira nám!! :o
30. júlí 2006 klukkan 23:39
Hörður Guðmundsson
 
Skordýrið sem sést þarna á myndinni er jú ansi vel lemstrað, það fannst á fjölförnum göngustígi í dýragarði hérna á Spáni, og væntanlega vel þjappað.

Annars er þessi fluga frekar sjalgæf og því erfitt að reyna ná myndum af kvikyndinu, en er að fara í ágæta göngu á morgun og kanski heppnin verði með mér að finna eitt slíkt.
En skal næstum því lofa að koma fyrir einni vespu í næstu færslu...eða hvað sem þetta kvikyndi er...

Annars er myndin samsetta í raun nokkrar myndir sem voru teknar á þrífót og með 20sek timer, svo skeytt saman í photoshop ;)
31. júlí 2006 klukkan 14:43
Þannig að sagan af flugunni er "to be continued..." :)

Allt í einu datt mér í hug hversu jákvætt orðið "kvikyndi" er því forskeytið þýðir einfaldlega hreyfanlegt og viðskeytið er "yndi" samanber unaður svo næst þegar einhver fer að nöldra yfir einhverju skorkvikyndi þá getur þú bent hlutaðeigandi á það að hugtakið "skorkvikyndi" tákni einfaldlega hraðskreiðan og dáðan markaskorara ;)

Photoshop, hlaut að vera ;)
01. ágúst 2006 klukkan 21:17
Ásta
 
EN veistu hvað þeir eru sætir spánverjar... Jammmý.... ;)

fóru þið ekki á hótelið að borða sem ég benti ykkur á ....? :/
05. ágúst 2006 klukkan 03:01
Hörður Guðmundsson
 
Ég tók nú ekki eftir neinum sætum spánverjum :Þ

en fórum ekki að borða þar, þó það var rétt við hliðiná okkur...
ég gleymdi á hvaða degi maður átti að fara...
þannig McDonalds hélt áfram að vera í hópi bestu vina minna :)
10. ágúst 2006 klukkan 00:38
Haffi
 
Hver man ekki eftir Kvik-Yndi ehf?
11. ágúst 2006 klukkan 21:21

Skrifa athugasemd